Fridhelgisstefna

Persónuupplýsingar sem unnið er úr þegar þú stofnar reikning hjá Matarkjallarinn:

Þegar þú stofnar reikning hjá Matarkjallarinn biðjum við þig um að láta okkur í té tölvupóstfang þitt og heiti. Þú getur valið um að gefa einungis upp eiginnafn þitt eða gælunafn í stað fulls nafns þíns, kjósir þú það frekar.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:

a) Matarkjallarinn vinnur með tölvupóstfang þitt vegna þess að þú notar netfang þitt og lykilorð til að skrá þig inn í reikning þinn. Lagalegar forsendur fyrir vinnslu á tölvupóstfangi þínu eru byggðar á lögmætum hagsmunum Matarkjallarinn til að standa vörð um öryggi reikningsins þíns.

b) Matarkjallarinn vinnur einnig með tölvupóstfang þitt í þeim tilgangi að senda þér mikilvægar upplýsingar um vörur Matarkjallarinn, smáforrit eða reikning þinn hjá fyrirtækinu, svo sem mikilvægar öryggisupplýsingar eða efnislegar breytingar á friðhelgisstefnu þess. Nafnið sem þú lætur í té er tengt við auðkennisprófíl reikningsins þíns og sett fram þegar þú kemur athugasemdum eða öðru efni á framfæri við vefsetur eða í smáforrit Matarkjallarinn. Lagalegar forsendur til að vinna með tölvupóstfang þitt og nafn í þessu skyni eru lögmætir hagsmunir Matarkjallarinn til að veita þér mikilvægar öryggisupplýsingar og aðrar upplýsingar um vörur Matarkjallarinn, smáforrit eða reikning þinn hjá fyrirtækinu eða efnislegar breytingar á friðhelgisstefnu þess og til að gefa þér kost á að eiga samskipti við aðra notendur Matarkjallarinn.

c) Matarkjallarinn mun, ef þú velur að veita samþykki þitt fyrir því að taka á móti markaðsupplýsingum frá Matarkjallarinn, einnig vinna með tölvupóstfang þitt í því skyni að senda þér markaðsupplýsingar um vörur og smáforrit Matarkjallarinn. Samþykki þitt eru þær lagalegar forsendur sem eru fyrir því að vinna með tölvupóstfang þitt. Þú getur dregið til baka samþykki þitt hvenær sem er með því að breyta kjörstillingu (e. preferences) þínum í reiknngi hjá Matarkjallarinn eða segja upp áskriftinni með því að slá á viðeigandi tengil neðst í markaðssetningartölvupóstum til þín. Markaðssetningartölvupóstarnir sem þú færð frá Matarkjallarinn byggjast á því hvaða kjörstillingu þú velur í reikningi þínum hjá Matarkjallarinn, staðsetningu samkvæmt IP-tölu þinni, tegund af Matarkjallarinn tækjum sem þú hefur bætt við reikning þinn hjá Matarkjallarinn og áskriftir sem þú hefur látið teljast til reiknings þíns hjá Matarkjallarinn. Lagalegar forsendur þess að vinna úr þessum gögnum felast í lögmætum hagsmunum Matarkjallarinn til að draga úr fjölda markaðssetningartölvupósta sem eru sendir til hvers ákveðins viðskiptavinar með því að velja hvaða viðskiptavinir fá í hendur ákveðna markaðssetningartölvupósta frekar en að senda hvern markaðssetningartölvupóst á alla viðskiptavini sem hafa samþykkt að fá slíka pósta senda til sín.

d) Matarkjallarinn mun einnig vinna með tölvupóstfang þitt með því að tengja það við reikning þinn hjá Matarkjallarinn þegar þú átt í samskiptum við fulltrúa sem starfa hjá viðskiptamannaþjónustu okkar. Lagalegar forsendur fyrir þessari úrvinnslu eru lögmætir hagsmunir okkar sem felast í að láta þér í té vandaða viðskiptamannaþjónustu.

Persónuupplýsingar sem unnið er úr þegar þú skráir þig inn í reikning Matarkjallarinn fyrirtækis þíns með persónutengdum skilríkjum á samfélagsmiðlum, kjósir þú slíkt fyrirkomulag

Þú getur valið að innskrá þig í reikning þinn hjá Matarkjallarinn með því að nota innskráningarskilríki samfélagsmiðla (t.d. innskráningarskilríki á Facebook). Veljið þú þennan kost verður þú, í fyrsta skiptið þegar þú gerir það, spurður hvort þú samþykkir að þjónustuveitanda samfélagsmiðils sé heimilt að láta í té ákveðnar upplýsingar til Matarkjallarinn, svo sem nafn þitt, tölvupóstfang, auðkennismynd, einstök skrif, athugasemdir og aðrar upplýsingar sem tengjast reikningi þínum á ákveðnum samfélagsmiðli.

Allar þessar upplýsingar eru gerðar tiltækar Matarkjallarinn af hálfu þjónustuveitanda samfélagsmiðils vegna þess hvernig samsetning innskráningar á samfélagsmiðla virkar. Fyrirtækið Matarkjallarinn mun þó aðeins halda eftir og vinna með tölvupóstfang þitt. Viljir þú ekki að þjónustuveitandi samfélagsmiðils deili upplýsingum þínum með Matarkjallarinn geturðu einfaldlega skráð þig inn á reikning þinn hjá Matarkjallarinn og notað til þess innskráningarskilríki þín í stað þess að skrá þig inn með innskráningarskilríkjum samfélagsmiðilsins.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:

Fyrirtækið Matarkjallarinn tengir tölvupóstfang þitt sem veitt er þjónustuveitanda samfélagsmiðilsins við Matarkjallarinn fyrirtæki þitt svo að þú getur notað tölvupóstfang þitt til að skrá þig inn í reikning Matarkjallarinn fyrirtækis þíns síðar meir, óskir þú ekki lengur eftir að notast við innskráningarskilríki þín á samfélagsmiðli. Lagalegar forsendur fyrir því að vinna þessar upplýsingar í þessu skyni eru löglegir hagsmunir Matarkjallarinn fyrir því að láta þér í té aðferð sem er innskráningarvalkostur og hinu að tryggja öryggi reiknings þíns.

Persónuupplýsingar sem unnið er með þegar þú hefur samskipti við Matarkjallarinn

Þegar þú átt í samskiptum við fulltrúa sem starfa fyrir viðskiptamannaþjónustu okkar í tölvupósti, síma, á Netinu eða augliti til auglitis söfnum við persónuupplýsingum eins og nafni, póstfangi, símanúmeri, tölvupóstfangi og kjörstillingu á samskiptum og upplýsingum um vörur sem þú átt frá Matarkjallarinn fyrirtækinu, eins og raðnúmer og dagsetningu viðskipta.

Til að bæta viðskiptamannaþjónustu okkar, með fyrirvara um gildandi lög, gætum við jafnframt skráð og farið yfir samtöl við fulltrúa sem þjónusta við viðskiptamenn og greina endurgjöf sem okkur var veitt af frjálsum vilja í viðskiptamannakönnunum. Fulltrúar sem þjónusta viðskiptamenn okkar gætu eftir atvikum og með leyfi þínu skráð sig á reikning Matarkjallarinn fyrirtækis þíns til að hjálpa til við að greiða úr flækjum og leysa úr vanda sem upp hefur komið.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:

Við notum þessar upplýsingar til að láta þér í té viðskiptastuðning og stuðning vegna vörukaupa og einnig til að fylgjast með gæðum og tegundum viðskiptamannastuðnings og stuðnings vegna vörukaupa sem við veitum viðskiptavinum okkar. Lögmætar forsendur fyrir því að vinna úr þessum upplýsingam að því er þetta varðar eru lögmætir hagsmunir Matarkjallarinn fyrirtækisins sem felast í því að veita vandaðan stuðning vegna vörukaupa. Samþykki þitt, sem þú getur dregið til baka, eru þær lögmætar forsendur sem með þarf til að við skráumokkur inn á reikning þinn hjá Matarkjallarinn eru eftir atvikum til að hjálpa við að greiða úr flækjum og leysa vanda þinn.

Persónuupplýsingar sem unnið er úr þegar þú kaupir vöru á vefsetri Matarkjallarinn website:

Hafir þú keypt vöru á vefsetri Matarkjallarinn mun Matarkjallarinn safna saman nafni þínu, póstfangi og símanúmeri. Við skoðum hvorki né geymum upplýsingar um greiðslukort þitt. Þriðji aðili, Borgun, Korta eða Valitor, vinnur úr upplýsingum á greiðslukorti viðskiptavinar þegar viðskiptavinir Matarkjallarinn nota greiðslukort til að versla á vefsetri Matarkjallarinn. Við mælum með að þú athugir vandlega stefnu Borgunar, Kortu og Valitors varðandi friðhelgi einkalífsins.

TILGANGUR OG LAGALEGAR FORSENDUR:

Við söfnum saman nafni þínu, póstfangi og símanúmeri í því skyni að geta unnið með pöntun þína og klárað viðskipti þín. Framkvæmd á samningi eru lagalegar forsendur fyrir vinnslu nafns þíns, póstfangs og símanúmers í þessu skyni. Við vinnum einnig með persónuupplýsingar þínar sem hluta af ferli okkar við að koma upp um svik. Llögmætir hagsmunir okkar við að verja Matarkjallarinn og viðskiptavini okkar fyrir tilraunum til að koma á sviksamlegum viðskiptum eru lagalegar forsendur fyrir vinnslu persónuupplýsinga þinna í því skyni.

Flokkar viðtakenda persónuupplýsinga

Aðrir þjónustuveitendur:

Matarkjallarinn notar skýjaþjónustu þriðju aðila eins og MAILCHIMP til að aðstoða við að senda tölvupósta. Þjónusta þessi fylgist með starfsemi sem tengist þessum tölvupóstum, hvort þeir séu opnaðir, á hvaða tengla var slegið á og hvort viðskipti hlutust af því að opna þessa tengla. Matarkjallarinn notar þessi gögn til að greina hversu mikil þátttaka hlaust af þessum tölvupóstum. Matarkjallarinn notar þjónustuveitendur úr hópi þriðju aðila til að senda keyptar vörur og hjálpa okkur við að skilja betur notkun á vefverslun Matarkjallarinn, auk vefsetra og smáforrita Matarkjallarinn.

Aðrir þjónustuveitendur:

Matarkjallarinn notar skýjaþjónustu þriðju aðila eins og MAILCHIMP – HUBSPOT – BARILLIANCE – AWEBER til að aðstoða við að senda tölvupósta. Þjónusta þessi fylgist með starfsemi sem tengist þessum tölvupóstum, hvort þeir séu opnaðir, á hvaða tengla var slegið á og hvort viðskipti hlutust af því að opna þessa tengla. Matarkjallarinn notar þessi gögn til að greina hversu mikil þátttaka hlaust af þessum tölvupóstum. Matarkjallarinn notar þjónustuveitendur úr hópi þriðju aðila til að senda keyptar vörur og hjálpa okkur við að skilja betur notkun á vefverslun Matarkjallarinn, auk vefsetra og smáforrita Matarkjallarinn.

Vafrakökur og svipuð tækni

Vefsetur:

Við, með hjálp þriðju aðila þjónustuveitenda gagnagreiningar, söfnum ákveðnum upplýsingum þegar þú heimsækir vefsetur okkar í því skyni að hjálpa til við greiningu á því hvernig þú og aðrir gestir ferðast um vefsetur Matarkjallarinn og taka saman samanlagða tölfræði um notkun setursins og svarhlutfall. Innan þessara upplýsinga teljast IP-vistfang (e. IP address), landfræðileg staðsetning búnaðar þíns, tegund vefvafra og tungumál sem þú notar þar, dagsetning og stund heimsóknar, hvenær sólarhrings þú kemur á vefsetrið, hvaða síður þú skoðar innan þess og á hvaða síðuþætti (t.d. tengla) þú slærð. Við gætum notað vafrakökur, myndeindartög (e. pixel tags), gengsæjar GIF-myndir eða svipuð tól á vefsetri eða í tölvupóstum okkar til að hjálpa til við að safna saman og greina slíkar upplýsingar. Við notum þessar upplýsingar til láta í té það efni sem er mest viðeigandi hverju sinni, til að mæla skilvirkni auglýsinga, auðkenna og lagfæra vanda og til að bæta heildarreynslu gesta okkar á vefsetrinu. Við gætum jafnframt starfað með einum eða mörgum þriðju aðilum til að láta í té auglýsingar á Netinu fyrir hönd okkar. Þeir gætu notað myndeindartög eða aðra svipaða tækni til að safna upplýsingum um heimsóknir þínar á vefsetrið og þær upplýsingar síðan til að senda þér markvissar auglýsingar. Fyrir fleiri upplýsingar um þessa starfsvenju og til að skrá sig úr slíkri samantekt eða notkun á þessum upplýsingum af hálfu þriðju aðila sem veita okkur þjónustu, vinsamlegast sjáðu upplýsingar á www.networkadvertising.org.

Viljir þú ekki að upplýsingum sé safnað fyrir milligöngu þessara tæknitóla þarf aðeins einfalt ferli í flestum netvöfrum til að afþakka sjálfkrafa þjónustu þeirra eða fá upp val til að hafna eða þiggja þjónustu þeirra.

Þeir sem búa í Evrópusambandinu eða í annarri lögsögu þar sem farið er fram á að við fáum leyfi þitt til að nota vafrakökur (e. cookies) á vefsetrinu okkar — eins og verður á Íslandi þegar viðeigandi reglugerð Evrópusambandsins hefur verið færð inn í EES-samninginn og innleidd af hálfu Alþingis — færðu tækifæri til að stjórna kjörstillingu þinni á vefsetrinu, að því undanskildu að ákveðnar vafrakökur verða að virka til að greiða fyrir grundvallarstarfsemi vefsetursins, og þú getur valið þann kost að aftengja þessar vafrakökur.

Vefsetur Matarkjallarinn fyrir farsíma:

Við söfnum einnig gögnum frá notendum að því er varðar notkun þeirra á vefsetri Matarkjallarinn fyrir farsíma. Tegundir greinanlegra upplýsingar sem er safnað fela meðal annars í sér dagsetningu og tímann þegar smáforritið fær aðgang að netþjónum okkar, staðsetningu tækisins, valið tungumál, hvaða upplýsingar og skrár hefur verið niðurhalað í forritið, notendahegðun (t.d. hvaða þættir eru notaðir, tíðni notkunar), stöðuupplýsingar tækis og búnaðar, tegund tækis, vélbúnaðar- og stýrikerfisupplýsingar og upplýsingar sem varðar hvernig smáforritið virkar. Matarkjallarinn notar þessi gögn til að bæta gæði og virkni forrita okkar fyrir farsíma og vefverslun Matarkjallarinn til að þróa og markaðssetja vörur og þætti sem þjóna best þér og öðrum notendum og til að auðkenna og leiðrétta stöðugleikavanda forritsins og annan nothæfnisvanda eins fljótt og auðið er.

Lögmætir hagsmunir okkar til að skilja hvernig viðskiptavinir okkar eiga gagnkvæm samskipti við vefsetur okkar eru þær lagalegar forsendur sem við höfum varðandi vinnslu á greinanlegum upplýsingum, í þeim tilgangi að bæta reynslu notendans og virkni vara, snjallforrita og vefseturs okkar.

Her eru dæmi um þriðju þjónustuaðila sem við notumst við nú þegar og veita greiningu og svipaða þjónustu:

GREININGARÞJÓNUSTA:

Google: Við notum Google Analytics til að fylgjast með tölfræði vefsíðunnar og öðrum lýðfræðilegum upplýsingum, áhugamál og hegðun á vefsetrum. Við notum einnig Google Search Console-stjórnborðið til að hjálpa okkur að skilja hvernig gestir finna vefsetur okkar og í því skyni að bæta leitarvélabestun (SEO) okkar. Fáðu frekari upplýsingar um hvernig nota má þessar greiningarupplýsingar, hvernig eigi að stýra notkun upplýsinga þinna og hvernig skuli komast hjá því að Google Analytics noti gögn þín.

Samfélagsmiðlar:

Þriðju þjónustuaðilar samfélagsmiðla sem láta í té gagnvirkar íbætur (e. plug-ins) eða þætti í samfélagsmiðlum (t.d. til að heimila þér að tengjast Facebook eða Twitter í því skyni að finna vini til að bæta við í tengslahópinn eða til að „læka“ síðu) um vefsetur eða smáforrit fyrir farsíma Matarkjallarinn, gætu notað vafrakökur eða aðrar aðferðir (t.d. vefvita (e. web beacons)) til að safna upplýsingum um notkun þína á vefsetrum eða smáforritum. Þriðji aðili styðst við stefnu sína varðandi friðhelgi einkalífsins, sem tiltæk er á samfélagsmiðlinum, við að nota slíkar upplýsingar og leggjum við til að þú skoðir hana ítarlega. Slíkir þriðju aðilar gætu notað þessar vafrakökur eða aðrar ferilskoðunaraðferðir í eigin skyni með tengja upplýsingar um notkun þína á vefsetri okkar við þær persónuupplýsingar sem þeir gætu ráðið yfir um þig. Við gætum einnig komist yfir greiningarupplýsingar frá samfélagsmiðlum sem hjálpa okkur að mæla skilvirkni efnisinntaks okkar og auglýsinga á samfélagsmiðlum (t.d. þrykk eða áslátt).

Börn

Við óskum eftir því að einstaklingar undir 16 ára aldrei veiti ekki Matarkjallarinn persónuupplýsingar. Ef við komumst að raun um að við höfum safnað saman persónuupplýsingum frá barni undir 16 ára aldri munum við grípa til aðgerða í því skyni að eyða þeim upplýsingum eins fljótt og auðið er.

Uppfærslur á stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins

Við gætum uppfært af og til þessa stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins þegar við bætum við nýjum vörum og smáforritum og þegar við bætum núverandi framboð okkar og um leið og tækni- og lagabreytingar verða. Þú getur séð hvenær þessi stefna varðandi friðhelgi einkalífsins var síðast endurskoðuð með því að líta til „Síðast uppfærð“ eða „Last updated“ skýringartextann efst á þessari síðu. Breytingar taka gildi þegar við setjum inn endurskoðaða stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins.

Við munum tilkynna þér ef þessar breytingar eru efnislegar og, ef þess er krafist í gildandi lögum, að óska eftir samþykki þínu. Þessi tilkynning verður veitt með tölvupósti eða með því að setja inn tilkynningu þess efnis á vefsetur og smáforrit Matarkjallarinn sem tengjast þessari stefnu varðandi friðhelgi einkalífsins.

Varðveisla persónuupplýsinga

Við munum geyma persónuupplýsingar þínar eins lengi og aðgangur þinn hjá vefsíðu Matarkjallarinn er talinn virkur. Einnig má leita undir „Réttur þinn“ eða „Your rights“ til að finna lýsingu á réttindum þínum til að vera viss.

Gagnastýringar- og gagnaverndunarstarfsmaður

Persónuupplýsingum sem Matarkjallarinn safna um þig er stjórnað af Íslenski Matarkjallarinn ehf. sem hefur aðsetur á Aðalstræti 2 – 101 Reykjavik, Íslands. Gagnaverndunarstarfsmaður Matarkjallarinn hefur aðsetur á sama heimilisfangi og má einnig hafa samband við hann um info@matarkjallarinn.is.

Réttur þinn

Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða á EES-svæðinu þegar viðkomandi reglugerð ESB hefur einnig tekið gildi þar) hefur þú réttindi samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR) til að fá aðgang að og leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum, takmarka færanleika gagna og vinnslu persónuupplýsinga þinna, og réttindi til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna og rétt til að leggja fram kvörtun til eftirlitsyfirvalda. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) gæti þó verið að þú hafir í þessu sömu réttindi samkvæmt innlendum lögum.

Til að krefjast aðgangs að og leiðrétta, takmarka færanleika eða eyða persónuupplýsingum þínum eða hætta með reikning þinn hjá Matarkjallarinn geturðu haft samband við okkur á info@matarkjallarinn.is.

Sért þú með búsetu í Evrópusambandinu (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) og óskar eftir að nýta rétt þinn til að takmarka vinnslu á eða réttindi þín til að mótmæla vinnslu á persónuupplýsingum þínum geturðu haft samband við gagnaverndunarstarfsmann okkar á lögheimili okkar eða með tölvupósti í info@matarkjallarinn.is. Sért þú með búsetu utan Evrópusambandsins (eða eftir atvikum í EES, sbr. að ofan) en teljir þig hafa réttindi til að takmarka vinnslu á eða réttindi til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna samkvæmt lögum í heimalandi þínu, skaltu vinsamlegast hafa samband við gagnaverndunarstarfsmanninn á info@matarkjallarinn.is.